Thorarinn.com

Þórarinn Stefánsson

» Hafa skal það sem betur hljómar «

Stök færsla úr dagbókinni:

Postpáskagreining

Þá eru páskarnir að baki og maður mættur til vinnu uppfullur af gleði, hamingju og tilhlökkun að láta til sín taka og betrumbæta líf borgaranna.

Rétt að líta aðeins yfir verkefnalista páskahelgarinnar og sjá hverjar efndir urðu:

Taka til í vinnuherberginu/skrifstofunni/ruslahaugnum
Hálfnað verk þá hafið er...
Leysa nokkur vandamál með vefumsjónarkerfi GSK
Komst hálfu skrefi nær vandanum, en er ekki búinn að leysa
Virkja RSS lista fyrir thorarinn.com
Listinn er farinn að virkja en íslensku stafirnir virðast fara illa í validatora. Vona að Már geti liðsinnt mér í því.
Flokka gömul föt til að skila í Sorpu
Búið! Á bara eftir að fara með þau í Sorpu
Skrifa bréf
Tókst ekki að klára, verkefni vikunnar
Lesa í LOTR
Föruneytið nýsloppið úr Moríu
Lesa í DWWS
Búinn
Venja mig af óskiljanlegum skammstöfunum
Tókst ekki, bjó m.a.s. til nýja: "m.a.s.a.s" sem má t.d nota í setningum á borð við "Ég kann m.a.s.a.s. sætabrauðsdrengur á rússnesku!"
Hanna nýtt lúkk á thorarinn.com
Þetta var eitt af þeim (fáu) verkefnum sem fengu næga athygli og eru langt komin - nýtt er útlit væntanlegt fyrir 17. júni
Vera duglegur að heimsækja fólk
Bæði og...
Finna afsakanir fyrir því að gera bara það af þessum lista sem mér finnst skemmtilegt
Lýsing á páskahelginni í hnotskurn :)

Eins og vera ber í tiltektum finnur maður hluti sem hugsanlega gætu verið nothæfir í nútímanum (og hluti sem maður skilur ómögulega hvers vegna maður ákvað að geyma). Ég dró til dæmis fram hálsfesti sem ég fékk í fermingargjöf en hef ekki gengið með síðan einhvern tíman í menntaskóla. Hún verður prufukeyrð næstu daga.

And that's all I have to say about that...

Láttu ljós þitt skína:




(hvergi birt, verður að vera virkt)


(Línubil halda sér, sjá html reglur neðar)

(smákaka)

Leyfilegt html: <a href="http://vefslóð">texti</a>, <strong>, <em>, <b>, <i>.

"Ný" netföng fá sjálfvirkan póst til að staðfesta að þau séu ekta. Ef netfang er ekki staðfest hverfur athugasemdin eftir sólarhring. Aðeins þarf að staðfesta hvert netfang einu sinni.

Ofangreint er bara til að forðast ruslsendingar og rugludalla, upplýsingar um netföng verða ekki (mis)notaðar á nokkurn hátt.


< Fyrri færsla:
Páskapiparsteik piparsveinsins - byrjendaleiðbeiningar
Næsta færsla: >
RSS væddur netnjörður

Færslusafn:

Fjölskyldan:

Hugleikarar:

Vinir og kunningjar .is:

Vinir og kunningjar .útl:

Fyrrum samnemendur í ITU:

Í dvala:

Samband / Contact:

(+354) 895 7561
MSN and Skype info on request

thorarinn (hjá} thorarinn {punktur) com