Thorarinn.com

Þórarinn Stefánsson

» Hafa skal það sem betur hljómar «

Stök færsla úr dagbókinni:

Ekki orð um fjölmiðlafrumvarpið

Eftir fund í ritstjórn thorarinn.com var ákveðið í leynilegri atkvæðagreiðslu að ekki verði minnst hér einu orði á fjölmiðlafrumvarpið og allt það havarí. Það verður eftirlátið öðrum.

Þess í stað verður sagt frá því að ritstjóri er á leið til heimahaganna yfir helgina.

Þórarinn afi hefði orðið 100 ára á laugardaginn og í tilefni af því verður efnt til samsætis í Valaskjálf. Ég verð að viðurkenna að ég er ekki með dagskrána alveg á hreinu, en þykist þó vita að sýndar verði gamlar myndir, rifjaðar upp sögur og eflaust eitthvað sungið, auk þess sem af þessu tilefni verða söfnum fyrir austan afhentir ýmsir munir sem voru í hans eigu.

Það stefnir í prýðilega mætingu ættarinnar og munum við fjórir frændur keyra austur á morgun (föstudag) í glymjandi rokki og galgopahúmor. Endurkoma áætluð á sunnudagskvöld.

Afi Þórarinn

Þessi mynd af afa var líklega tekin rétt fyrir 1960, því það sumar brann Alþýðuskólinn á Eiðum og þar með þessi skrifstofa og allt innbú þeirra hjóna.

Mitt framlag til undirbúningsins hefur m.a. verið að brjóta um lítinn fjórblöðung þar sem lífshlaupi afa er lýst í stuttu máli af föðursystkinum mínum.

Fyrir áhugasama er fjórblöðungurinn hér á pdf formi.

Láttu ljós þitt skína:




(hvergi birt, verður að vera virkt)


(Línubil halda sér, sjá html reglur neðar)

(smákaka)

Leyfilegt html: <a href="http://vefslóð">texti</a>, <strong>, <em>, <b>, <i>.

"Ný" netföng fá sjálfvirkan póst til að staðfesta að þau séu ekta. Ef netfang er ekki staðfest hverfur athugasemdin eftir sólarhring. Aðeins þarf að staðfesta hvert netfang einu sinni.

Ofangreint er bara til að forðast ruslsendingar og rugludalla, upplýsingar um netföng verða ekki (mis)notaðar á nokkurn hátt.


< Fyrri færsla:
Svalastripl í gær
Næsta færsla: >
Nýyrði: heilatregða

Færslusafn:

Fjölskyldan:

Hugleikarar:

Vinir og kunningjar .is:

Vinir og kunningjar .útl:

Fyrrum samnemendur í ITU:

Í dvala:

Samband / Contact:

(+354) 895 7561
MSN and Skype info on request

thorarinn (hjá} thorarinn {punktur) com