28. júní 2004 | 0 aths.
Álit mitt á fréttaskrifurum mbl.is fer stöðugt lækkandi. Mér finnst maður finna meinlegar (eða aulalegar) villur í ótrúlegu magni frétta. Sumt eru villur sem greinilega stafa af copy/paste vinnubrögðum, annað virðist stafa af hreinni fáfræði (svo ég tali nú ekki um málfræði og stafsetningarvillur).
Rétt í þessu var ég að lesa frétt um enn eina öryggisógnina sem steðjar að notendum Internet Explorer. Eftir að hafa lesið frétt mbl.is kviknuðu margar spurningar, svo ég smellti á frétt BBC sem mbl.is vísar á. Kom þá ýmislegt í ljós, sem ekki varpar jákvæðu ljósi á vinnubrögð moggapenna.
Mun ég nú setja upp beturvitahattinn og þusa svolítið. (Lesendur hafa verið varaðir við.)
Mbl.is segir m.a.:
Þá kemur fram að þeir netþjónar sem eru smitaðir bæta miklu magni af Java skrift á Vefinn, einnig gif og jpg skrám til þeirra sem vafra um svæði sem netþjónninn hýsir. Svo mikið magn af kóða gæti valdið villu í Windows.
Og minn huxar: "Hmmm... þetta er einhvers konar álags vandamál". Svo les maður frumtextann á BBC:
[...] Infected servers are adding a malicious chunk of Javascript to all the web, gif and jpg files served up to anyone browsing the sites they host. When loading on a browsing PC, this chunk of code might trigger a Windows error message.
Hér er ekki minnst orði á magn, hvað þá mikið magn. "Chunk of code" þýðir einfaldlega kóðabútur og segir ekkert um stærð hans. Það er kóðinn sjálfur sem veldur Windows villunni, ekki stærð hans. Rétt(ari) þýðing væri eitthvað í líkingu við:
Smitaðir netþjónar bæta varasömum bútum af javascript kóða við allar vefsíður og myndaskrár (gif og jpg) sem notendur sækja á viðkomandi þjóna. Þessir kóðabútar geta valdið villuskilaboðum í Windows stýrikerfinu ef þeim er hlaðið niður á tölvur notenda.
(Líklegast koma villuboðin í ljós þegar kóðabútarnir reyna að hlaða sjálfum sér niður á tölvur notenda, frekar en eftir að þeir hafa gert það - þó finnst mér BBC ekki orða það alveg nógu skýrt til að ég þori að fullyrða um það).
Þetta er allt annað en það sem lesa má úr þýðingu mbl.is. Frétt þeirra segir (að mínu viti) í raun ekkert um raunverulega vandamálið eða einkenni þess.
En kannski gerir mogginn það bara til að gleðja okkur nöldrarana að sletta stafsetningar-, innsláttar- og annars konar aulavillum inn í fréttirnar sínar?
(+354) 895 7561
MSN and Skype info on request