02. júlí 2004 | 0 aths.
Ţorfinnur, Jón Heiđar, Már og Garpur komu í grillveislu í gćr. Ég held ađ grillunin og bođiđ í heild hafi bara heppnast vel, a.m.k. var ég sáttur.
Ţađ var yfirlýst stefna ađ vera bara međ kjöt og grćnmeti, ţannig ađ ég grillađi kúrbít og helling af paprikum, ostfyllta sveppi og svínakjöt. Međ ţessu var hellingur af salati og köld piparsósa. Ég hafđi hugsađ mér ađ hressa upp á salatiđ međ melónubitum, en melónan reyndist allt of sćt til ţess og var ţví borđuđ međ ísnum í stađinn :)
Ađ ósk eins gestanna var leikur Tékka og Grikkja í sjónvarpinu, en ţađ verđur ađ segjast ađ sá leikur truflađi samkvćmiđ lítiđ, ţađ litla sem ég sá útundan mér var líka alger hrútur.
Garpur var hins vegar í mun meira stuđi heldur en leikmenn í Portúgal og grandskođađi alla íbúđina, sér í lagi símasafniđ og verkfćrakistuna, auk ţess ađ umrađađa hinu og ţessu smálegu. Skemmtilegur strákur og upprennandi grúskari.
Nú er helgin ađ bresta á, fátt skipulagt nema auđvitađ tónleikar á sunnudaginn - en ég hef enga trú á ađ ég ţurfi ađ láta mér leiđast um helgina, enda verkefnalisti utanfara langur...
(+354) 895 7561
MSN and Skype info on request