22. september 2004 | 0 aths.
2. og 3. október sýnir Hugleikur einþáttungadagskrá undir yfirskriftinni "þetta mánaðarlega" í Kaffileikhúsinu. Þar verður meðal annars frumfluttur einþáttungur eftir mig sem ég hef ekki séð fluttan áður og sé ekki fram á að komast á frumsýninguna.
Einþáttungurinn fjallar um þrjár manneskjur sem festast í lyftu og samtal þeirra sem tekur örlítið aðra stefnu en búast mætti við...
Alls verða sýndir sex leikþættir eftir jafnmarga höfunda. Suma þættina hef ég séð og get hiklaust mælt með þeim. Sýnt er kl. 20 og ég hvet alla (sérstaklega þá sem hafa áhuga á skáldhæfileikum mínum til að skella sér í leikhús).
(+354) 895 7561
MSN and Skype info on request