Thorarinn.com

Þórarinn Stefánsson

» Hafa skal það sem betur hljómar «

Stök færsla úr dagbókinni:

Mánuður liðinn

Mér telst svo til að nú sé ég búinn að vera rétt rúman mánuð í útlandinu og e.t.v. rétt að taka saman stutta skýrslu.

Í stuttu máli hefur allt gengið að óskum (eða a.m.k. á vel viðunandi hátt). Ég er ágætlega sáttur við herbergið mitt (sér í lagi staðsetninguna) og sambúð okkar Andreas er með sóma. Ef yfirdýnufjárinn væri kominn væri húsgagnastatus orðinn góður.

Skólinn er spennandi og skemmtilegur. Það er auðvitað margt öðruvísi en ég á að venjast úr mínum háskólum til þessa, en það heyrist mér eiga við um flesta Danina líka. Það að hafa 5 daga "helgi" hefur kosti og galla - og reynir óneitanlega á sjálfsagann á köflum.

Danskan hefur ekki valdið teljandi vandræðum. Ég finn samt fyrir því í hópaverkefnum að ég er svolítið "fatlaður" þegar ég er hika og stama og reyni að koma því í orð sem ég ætla að segja. Danska talnakerfið hefur vafist fyrir mér, en það fer skánandi (ég er a.m.k. farinn að þekkja myntirnar í sundur án þess að þurfa að lesa á þær (yfirleitt)).

Veðrið hefur verið prýðilegt og heilsan góð (fyrir utan einn sólarhring í magapest).

Næsta verkefni er að reyna að koma mér upp sósíalneti, það að hanga einn heima á kvöldin og horfa á sjónvarpið eða lesa (sárasjaldan spila tölvuleiki) verður þreytandi til lengdar. Sem stendur er fredagsbarinn eini fasti félagslegi punkturinn, en ég ætla að róa svolítið í því að kynnast betur þeim skólafélögum mínum sem ég veit að búa í nágrenninu - prófa kannski að bjóða þeim heim í herbergið í te...

En nú var gestur dagsins, Sjöfn, að birtast. Ætla að sýna henni nágrennið og svo Fredagsbarinn og svo helgi framundan.

Láttu ljós þitt skína:




(hvergi birt, verður að vera virkt)


(Línubil halda sér, sjá html reglur neðar)

(smákaka)

Leyfilegt html: <a href="http://vefslóð">texti</a>, <strong>, <em>, <b>, <i>.

"Ný" netföng fá sjálfvirkan póst til að staðfesta að þau séu ekta. Ef netfang er ekki staðfest hverfur athugasemdin eftir sólarhring. Aðeins þarf að staðfesta hvert netfang einu sinni.

Ofangreint er bara til að forðast ruslsendingar og rugludalla, upplýsingar um netföng verða ekki (mis)notaðar á nokkurn hátt.


< Fyrri færsla:
Dýnupirr
Næsta færsla: >
Húsabakkaminningar - lokaþáttur

Færslusafn:

Fjölskyldan:

Hugleikarar:

Vinir og kunningjar .is:

Vinir og kunningjar .útl:

Fyrrum samnemendur í ITU:

Í dvala:

Samband / Contact:

(+354) 895 7561
MSN and Skype info on request

thorarinn (hjá} thorarinn {punktur) com