Thorarinn.com

Þórarinn Stefánsson

» Hafa skal það sem betur hljómar «

Stök færsla úr dagbókinni:

Stúdentsræfill í Hafnarpóstinum

Í morgun kom inn um bréfalúguna mína málgagn Íslendingafélagsins í Køben; Hafnarpósturinn. Þetta tölublað þykir mér sérlega áhugavert þar sem ég á pistil í því!

Nafni minn, Tótil, sem er bæði í ritstjórn og umbrjótari (auk þess að vera gamall vinnufélagi) hafði samband við mig og falaðist eftir pistli.

Ég get reyndar ekki kvartað yfir því að hafa verið að drukkna í andargift og innblæstri meðan á þessum skrifum stóð, en að lokum var ég þokkalega ánægður með afraksturinn.

Með góðfúslegu leyfi umbrjótara er hér eintak af pistlinum á pdf sniði:

Stúdentsræfill í Höfn.

Kannski ekki minn allra besti prósi, en frambærilegur (að ég held). Mér finnst stúdentsræfill skemmtilegt orð.

Á meðfylgjandi mynd má sjá mig eins og ég leit út áður en bjórvömbin tók yfirhöndina og ég fór að safna talibanaskeggi (aftur) til að draga athyglina frá miðbikinu.

Fyrir þá sem ekki kveikja á tali um óhreinar nærbrækur og Nørrebro, þá er þetta vísun í kaffiþvottahúsið þeirra Friðriks Whvaðsemhannnúheitir og félaga.

Sit að öðru leyti glaðbeittur eftir miðnætti að staðartíma að krukka í veftextanum um open source guaranabjórinn okkar. Var að senda frá mér 4 síður á dönsku (!) um bakgrunn open source og rökstuðning fyrir því Creative Commons leyfi sem sett verður á bjórinn.

Fyrir mömmu er rétt að taka fram að ég er að gantast; vambmál og skeggsídd er innan hefðbundinna marka.

Ræfillinn.

Láttu ljós þitt skína:




(hvergi birt, verður að vera virkt)


(Línubil halda sér, sjá html reglur neðar)

(smákaka)

Leyfilegt html: <a href="http://vefslóð">texti</a>, <strong>, <em>, <b>, <i>.

"Ný" netföng fá sjálfvirkan póst til að staðfesta að þau séu ekta. Ef netfang er ekki staðfest hverfur athugasemdin eftir sólarhring. Aðeins þarf að staðfesta hvert netfang einu sinni.

Ofangreint er bara til að forðast ruslsendingar og rugludalla, upplýsingar um netföng verða ekki (mis)notaðar á nokkurn hátt.


< Fyrri færsla:
Sniðugt þetta internet...
Næsta færsla: >
Danir... eru sprengjuóðir

Færslusafn:

Fjölskyldan:

Hugleikarar:

Vinir og kunningjar .is:

Vinir og kunningjar .útl:

Fyrrum samnemendur í ITU:

Í dvala:

Samband / Contact:

(+354) 895 7561
MSN and Skype info on request

thorarinn (hjá} thorarinn {punktur) com