12. desember 2004 | 0 aths.
Ég er að verða ansi lipur í að steikja danska nautakjötið. Reyndar er kannski rétt að taka fram að naut dagsins var uppvaxið í Þýskalandi en uppskorið í Danmörku. Að auki fyllist eldhúsið í hvert skipti af reykjarbrælu, veit ekki hvort ég kann ekki almennilega á gasið eða hvort mig vantar bara að nota meiri olíu.
En meðan steikin er mátuleg og meðlætið gott lifir maður af smá brælu.
Daginn í dag hef ég tekið í að sitja yfir verkefninu, fyrir utan drjúga pásu sem ég tók fljótlega eftir hádegið til að kíkja aðeins í verslanir og kaupa í matinn.
Þeir mega eiga það danir að þeir hafa hannað mikið af flottum húsbúnaði. Ég held ég færi létt með að spreða eins og einum árslaunum á miðhæðinni í Magasín bara í að kaupa græjur og húsáhöld. Hver veit hvað skilar sér með mér þegar ég flyt aftur á klakann?
Gangur verkefnisins hefur verið rólegur, en þó í rétta átt. Undanfarna þrjá daga höfum við unnið hvert fyrir sig með textasendingum í tölvupósti og nokkrum MSN spjöllum. Í dag söfnuðum við því saman sem við erum komin með, það safnast í 16 síður með einu og hálfu línubili. Það svarar líklega til rúmlega helmings af því textamagni sem við eigum að skila af okkur. Staðan verður skýrari eftir fund okkar með kennaranum okkar í fyrramálið.
Eftir hádegið stendur svo til að tappa ölinu á flöskur til eftirgerjunar.
Vika í flugið heim.
(+354) 895 7561
MSN and Skype info on request