07. september 2005 | 0 aths.
Ég tók eftir því að það þótti vetrarlegt á norðurlandi í morgun. Hér hefur reyndar ekki sést mikið til sólar í dag, en hitastigið hefur legið í kringum tuttugu gráðurnar. Það er einfaldlega frábært að geta rölt heim úr skólanum um níuleytið að kvöldi í kolniðamyrkri á stuttermabolnum og þótt hitastigið ósköp notalegt.
Dejligt.
Annars fór ég út að hlaupa í morgun, í fyrsta sinn eftir Reykjavíkurmaraþonið. Ég tók bara rólegan hring og hefði líklega þurft að borða aðeins meira áður en ég fór af stað. A.m.k. varð ég heldur orkulítill seinnipart hringsins og rölti soldinn spotta meðan blóðsykurinn var að jafna sig. Það voru því engin hraðamet slegin, enda ekki stefnt að því.
Standsetning herbergis gengur prýðilega. Meira um það síðar.
(+354) 895 7561
MSN and Skype info on request