19. ágúst 2007 | 0 aths.
Þar sem ég var að þvælast um í M&M á Laugaveginum, meðal annars í leit að þrítugsafmælisgjöf, rak ég augun í bók í hillunum merktar "trúarbrögð og dulspeki" (eða eitthvað í þeim dúr). Það var bókin "The Unofficial Tourists' Guide to Second Life"
Fyrir þá sem ekki þekkja til er þetta ekki leiðarvísir um löndin handan við móðuna miklu, heldur um tölvuleikinn/fyrirbærið Second Life. (Sjá m.a. umfjöllun í sunnudagsmogga og á mbl.is).
En þegar ég huxa betur út í það lýsir þessi flokkun kannski bara næmu innsæi starfsmannsins sem flokkaði.
Ópíum fjöldans og allt það...
(+354) 895 7561
MSN and Skype info on request